24.01.2012 22:12:48 / ka-freyjur
Sælar freyjur
Á síðustu æfingu kom upp sú hugmynd hvort að einhverjar væru til í að koma með smá veitingar eftir æfingu á fimmtudag. Spurning hvort að búningastjórarnir verði með eitthvað til sýnis eftir æfingu - ef ekki þá er alltaf gott að hafa smá kósý-heit eftir snildar æfingu.

Eru einhverjar sem bjóða sig fram?
»
24.01.2012 14:58:53 / ka-freyjur
Sælar KA-Freyjur
Þá er búið að skrá TVÖ lið um helgina

Eitt frábært A lið og eitt frábært B lið ......... í fyrstu og aðra deild.
Áfram KA-Freyjur
»
18.01.2012 12:40:17 / ka-freyjur
Sælar konur !
Eru ekki einhverjar konur úr ykkar hópi sem eru tilbúnar að dæma smávegis á mótinu um helgina hjá 2. og eða þá 3.fl.
Kv. Kalli
»
17.01.2012 12:23:53 / ka-freyjur
Við erum ekki fyrr búnar að slá í gegn á einu móti ... fyrr en annað tekur við

Nú er það Eikarmót í Höllinni helgina 27-28 janúar.
Hverjar geta tekið þátt ......... stefnum á að fara með nokkur lið a.m.k
Kv. Stjórnin
»
13.01.2012 12:03:06 / ka-freyjur
Kæru blaköldungar, -öðlingar og -ljúflingar Íslands
Fyrir hönd bæjarfélaganna (Dalvíkur- og Fjallabyggðar) og blakklúbbanna á Tröllaskaga (Hyrnunnar, Súlunnar og Rimanna) boða ég til 37.Öldungamóts Blaksambands Íslands (BLÍ) sem haldið verður á Tröllaskaga (Siglufirði, Ólafsfirði og Dalvík) dagana 28.-30.apríl 2012. Spilað verður á 9 völlum:
3 völlum í íþróttamiðstöð hvers bæjarkjarna þar sem sundlaug og þreksalur er í sömu byggingu.
Mótið hefur hlotið nafnið Trölli 2012.
Heimasíða mótsins er komin í gang en þar munu allar fréttir og upplýsingar varðandi mótið koma inn jafnt og þétt. Slóðin á heimasíðuna er:
www.trolli2012.is
»
11.01.2012 14:03:39 / ka-freyjur
Nú er nefndin að hefja störf. Viljið þið vera svo vænar að gefa ykkur smátíma eftir æfingu á fimmtudag.
Búninganefndin.
»
09.01.2012 16:52:57 / ka-freyjur
Sælar allar Freyjur.
Eftir mjög skemmtilegt mót um helgina er komið að fyrstu æfingu vikunnar. Birna kemst ekki í kvöld en við verðum duglegar að hita okkar mjúku liði og flottu vöðva upp og tökum nokkrar æfingar fyrir Birnu áður en við missum okkur í spilinu.
Sjáumst hressar sem flestar.
»
06.01.2012 21:21:53 / ka-freyjur
Byrja á að ná í Hólmfríði kl. 7:00 síðan Lovísu - Boggu og Gunnu. pikkum síðan Nönnu upp (hringjum á undan okkur)
»
06.01.2012 15:52:03 / ka-freyjur
Pick up tímar fyrir Mix-liðið
07:20 Karen, 07:20 Anna Kristín, 07:25 Sirra, 07:25 Jóhanna, 07:30 Hanna Dóra, 07:30 Eygló, 07:45 Linda
Muna eftir bensínpening 1.200,-
»
03.01.2012 22:43:04 / ka-freyjur
Jæja þá er það komið á hreint að farið verður með eitt lið til Húsavíkur.
Þær sem að ætla með eru Jóhanna, Eygló, Hólmfríður, Gunna, Linda, Björg, Nanna, Sirra og Björk.
Heyri í Skautakonum varðandi rútu austur og set það þá strax inn á síðuna.
Áfram KA Freyjur
»
01.01.2012 20:20:41 / ka-freyjur
Sælar allar KA - Freyjur og takk fyrir liðið ár.
Þá er komið enn eitt nýtt ár með nýjum markmiðum.
Fríið búið og svaka æfingar framundan.
Styttist og styttist í öldungamótið og mörg önnur skemmtileg mót framundan.
Um næstu helgi er nýjarsmót Völsunga og nú verðum við að athuga með þátttöku - vonandi náum við í tvö lið.
Sjáumst hressar á morgun 
»
28.12.2011 22:21:08 / ka-freyjur
Er einhver sem veit hvort það verður æfing á fimmtudag?
»
15.12.2011 23:43:13 / ka-freyjur
Á næsta mánudag spilum við, við Skauta og vonandi KA stelpurnar. Á eftir æfingu ætla liðin að setjast aðeins niður og eiga notalega samverustund. Þær sem geta, koma með veitingar, smákökur, nammi, snakk, drykki eða bara hvað sem er.
Við sem mættum í kvöld tókum þá ákvörðun að sleppa æfingu 22.des. en hafa 29. des. inni Vinsamlegast verið duglegar að svara hvort þið mætið á þá æfingu, því eftir því verður farið hvort verði æfing eða ekki.
Að lokum takk fyrir góða æfingu í kvöld stelpur. Síðustu tvær fimmtudagsæfingar hafa verið bráðskemmtilegar og við farið kófsveittar af velli. Höldum áfram á þessari braut.
»
13.12.2011 13:38:10 / ka-freyjur
Hæ, hæ og hó hó allar Freyjur.
Við eigum þrjár æfingar eftir fram að jólum. Á mánudaginn 19. verður jólamót milli okkar, Skautakvenna og kannski KA stelpnanna svo það er um að gera að fjölmenna þá. Fimmtudagurinn 22.des. þá er orðið mjög stutt í jólin svo það væri mjög gott að konur melduðu sig hverjar ætla að mæta í þann tíma. Opið er á milli jóla- og nýárs þannig að við náum að hlaupa af okkur jólasteikina og einstaka konfektmola fimmtudaginn 29.des. enda styttist í nýársmót Völsunga. KA húsið opnar aftur 3.jan. svo okkar fyrsti tími á nýju ári er 5.jan.
Stjórnin í jólaskapi.
»
05.12.2011 12:53:28 / ka-freyjur
Sælar kæru Freyjur
Loksins ætlum við að hafa veitingar því eftir æfingu í kvöld ætla Björk, Sirra, Hanna Dóra og Jórunn að bjóða upp á léttar veitingar. Bannað að flýta sér heim eftir æfingu - verðum með kökur og fínerííí
»
Síður:
1 2 3 ...
30